TINDAFERÐIR
HVANNADALSHNÚKUR
Við bjóðum uppá leiðsögn á hæsta tind Íslands, Hvannadalshnúk í Öræfajökli. Ef veðurfarið lofar er útsýnið yfirburða fallegt. Í norðri rísa fjallstoppar uppúr jökulbreiðunni, skriðjöklar streyma niður hlíðarnar og í suðri eru endalausir svartir sandar sem bera við Atlantshafið. Ganga á Hvannadalshnúk er krefjandi og spennandi áskorun sem náttúruunnendur ættu ekki að láta framhjá sér fara!
Hnappur
Vestari Hnappur í Öræfajökli var löngum talinn hæsti tindur Íslands. Hann stendur í 1.849 metra hæð yfir sjávarmáli í sunnanverðri öskjunni og situr því í hring með hæstu tindum Íslands, m.a. Hvannadalshnúk. Útsýnið á toppnum er því tígulegt þar sem horft er á háa tinda, eldfjallaöskjuna, sprunginn jökulinn og sveitina fyrir neðan.
Hrútsfjallstindar
Hrútsfjallstindar standa hæst í 1.875 metrum og eru þeir fjórir toppar. Þeir eru stórglæsilegir alpatindar í Öræfajökli vestan við Hvannadalshnúk og gefa Svínafellsjökli tígulega ásýnd. Ferðin er undurfalleg fjallganga sem er einnig krefjandi áskorun. Í leiðangrinum njótum við fallegs útsýnis á leiðinni sem og á toppnum.
ÞVERÁRTINDSEGG
Þverártindsegg eru í 1.553 metra hæð yfir sjávarmáli og er staðsettur innst inní Kálfafellsdal. Þetta er fáförul leið en ein flottasta tindaferð Vatnajökuls. Keyrt er með súperjeppa innst inn í Kálfafellsdal.
THE STORY OF LOCAL GUIDE
Local Guide is a small family run glacier guiding company that has been operating in South East Iceland since 1991. The company was founded by my grandfather, Sigðurður Bjarnason, but since 2015 myself (Aron) and my partner Helen María have taken over a part of the company…
dO YOU HAVE ANY QUESTIONS?
send us a request
send us a request