Hnappur
Hnappur
Skemmtilegur tindaleiðangur!
Keyrt er upp Hnappavallaleið
í 700-800 metra hæð og þaðan er gengið upp með jöklinum.
2023 dagsetning:
13.05
VERÐ 47.900 ISK
HNAPPUR
Vestari Hnappur í Öræfajökli var löngum talinn hæsti tindur Íslands. Hann stendur í 1.849 metra hæð yfir sjávarmáli í sunnanverðri öskjunni og situr því í hring með hæstu tindum Íslands, m.a. Hvannadalshnúk. Útsýnið á toppnum er því tígulegt þar sem horft er á háa tinda, eldfjallaöskjuna, sprunginn jökulinn og sveitina fyrir neðan. Vegna nágranna síns, Hvannadalshnúks, er Hnappur fáfarinn tindur sem gerir hann ennþá meira spennandi. Um er að ræða skemmtilega, fallega og krefjandi göngu
Fyrir hverja? Ferðin er á færi þeirra sem eru í góðu gönguformi og vanir erfiðum göngum í snjó. Ferðin er krefjandi og þarfnast samvinnu leiðsögumanns og göngumanna.
Áður hét jökullinn Hnappafellsjökull, dregið af þessum tindum, eða hnöppum, sem eru auðsjáanlegir í efstu brúnunum. Eftir eldgosið árið 1362, sem er langmesta gjóskugos á sögulegum tíma á Íslandi, lagðist byggð af í námunda við fjallið og var nafninu breytt í Öræfajökul. Það var svo ekki fyrr en árið 1891, í leiðangri á Hnapp í góðu útsýni, að greinilega sást að Hvannadalshnúkur væri hærri, og úr varð fyrsti leiðangurinn á hæsta tind Íslands í sömu ferð.
Ferðaáætlun:
Keyrt er upp í 700-800 metra yfir sjávarmáli, hina svokölluðu Hnappavallaleið, á breyttum jeppa. Aksturinn tekur um 30-60 mínútur. Þaðan er því hækkunin rúmir 1.100 metrar upp með jöklinum. Gangan í heild sinni er um 13-14 km og gert er ráð fyrir að hún taki um 8-10 klst. Við göngum á sprungnum jökli í línu og með ísaxir, einnig er möguleiki að við þurfum að ganga í mannbroddum. Í 1.800 metrum erum við komin upp að öskju Öræfajökuls og þar opnast sjóndeildarhringurinn stórlega. Við okkur blasir Dyrhamar, Hvannadalshnúkur, Sveinstindur, Snæbreið, Rótarfellshnúkur og Hnappurinn á hægri hönd. Dýrlegt útsýni!
Nauðsynlegt er að gista í Öræfum nóttina áður, þar sem gangan hefst eldsnemma morguns og lýkur ekki fyrr en seinni hluta dags.
Við mælum með að vera kominn um eftirmiðdag til þess að ná góðri hvíld fyrir langan og erfiðan dag.
Algengt er að fara af stað á milli 5 og 6 um nóttina, eftir aðstæðum.
Við erum með kynningarfund klukkan 17 daginn áður, ef þið komist ekki þá getið þið fengið upplýsingar í gegnum síma og tölvupóst.
Erfiðleikastig: 4 af 5 mögulegum
Lengd ferðar: 13-14 km, 8-10 klst
Hæð: 1.849 metrar
Hækkun: rúmir 1.100 metrar (keyrt uppí 700-800 metra hæð) Tímabil í boði: Apríl – Júní
Upphafssstaður: Fosshótel Glacier Lagoon
Verð: 49.900 ISK á mann fyrir opna brottför, max 6 kúnnar á leiðsögumann. Hafið samband við info@localguide.is eða s. 8941317 til að fá tilboð fyrir stærri hópa.
Hvað er innifalið: Leiðsögn, jeppaskutl og tilheyrandi jöklabúnaður sé þess þörf (belti, jöklabroddar, ísexi, o.fl.)
Hvað er ekki innifalið: Útivistarfatnaður, bakpoki, nesti og drykkur.
Hvað þarf að taka með: Nákvæmur búnaðarlisti verður sendur til þátttakenda. Flokkar: Jöklaleiðangur, tindaleiðangur
Tungumál leiðsögumanns: Íslenska og enska
BOOK NOW
FAQ
Ef einhverjar spurning eða áhyggjur vakna þá endilega skoðið algengar spurningar (FAQ) á tindaferðasíðuni okkar sem er helguð Hvannadalshnjúk. Ef það eru einhverjar fleiri spurningar þá ekki hika við að senda á okkur tölvupóst.
INTERESTED IN PRIVATE TOUR?
send us a request
send us a request













