Þverártindsegg
Þverártindsegg
Þetta er fáförul leið en ein flottasta tindaferð Vatnajökuls.
2023 dagsetning:
6.05
VERÐ 54.900 ISK
ÞVERÁRTINDSEGG
Þverártindsegg eru í 1.553 metra hæð yfir sjávarmáli og er staðsettur innst inní Kálfafellsdal. Þetta er fáförul leið en ein flottasta tindaferð Vatnajökuls.
Keyrt er með súperjeppa innst inn í Kálfafellsdal.
Fyrir hverja? Ferðin er á færi þeirra sem eru í góðu gönguformi og vanir erfiðum göngum í snjó. Ferðin er krefjandi og þarfnast samvinnu leiðsögumanns og göngumanna.
Erfiðleikastig: 4+ af 5 mögulegum
Lengd ferðar: 24 km, 11-15 klst
Hæð: 1.553 metrar
Tímabil í boði: Apríl – Júní
Upphafssstaður: Hnappavellir í Öræfum
Verð: 59.900 ISK á mann, lágmark 2 manns,
Hvað er innifalið: Leiðsögn, tilheyrandi jöklabúnaður ef þáttakendur vantar (sigbelti, broddar, karabína & ísexi), 4×4 skutl
Hvað er ekki innifalið: Útivistarfatnaður, bakpoki, nesti og drykkur
Hvað þarf að taka með: Nákvæmur búnaðarlisti verður sendur til þátttakenda
Tungumál leiðsögumanns: Íslenska og enska
Nauðsynlegt er að gista í Öræfum nóttina áður, þar sem gangan hefst eldsnemma morguns og lýkur ekki fyrr en seinni hluta dags.
Við mælum með að vera kominn um eftirmiðdag til þess að ná góðri hvíld fyrir langan og erfiðan dag.
Algengt er að fara af stað á milli 5 og 6 um nóttina, eftir aðstæðum.
Við erum með kynningarfund klukkan 17 daginn áður, ef þið komist ekki þá getið þið fengið upplýsingar í gegnum síma og tölvupóst.
BOOK NOW
FAQ
Ef einhverjar spurning eða áhyggjur vakna þá endilega skoðið algengar spurningar (FAQ) á tindaferðasíðuni okkar sem er helguð Hvannadalshnjúk. Ef það eru einhverjar fleiri spurningar þá ekki hika við að senda á okkur tölvupóst.
INTERESTED IN PRIVATE TOUR?
send us a request
send us a request













