Hvannadalshnjúkur

Við bjóðum uppá leiðsögn á hæsta tind Íslands, Hvannadalshnúk í Öræfajökli.

2023 dagsetning:
20.05 - frá sandfelli
27.05 - Hnappaleið keyrt upp í 600-800 m hæð

VERÐ FRA 49.900 ISK

Hvannadalshnúkur

Við bjóðum uppá leiðsögn á hæsta tind Íslands, Hvannadalshnúk í Öræfajökli. Ef veðurfarið lofar er útsýnið yfirburða fallegt. Í norðri rísa fjallstoppar uppúr jökulbreiðunni, skriðjöklar streyma niður hlíðarnar og í suðri eru endalausir svartir sandar sem bera við Atlantshafið. Ganga á Hvannadalshnúk er krefjandi og spennandi áskorun sem náttúruunnendur ættu ekki að láta framhjá sér fara!

Fyrir hverja?

Ferðin er á færi þeirra sem eru í mjög góðu gönguformi og vanir löngum og krefjandi göngum í snjó. Þrátt fyrir að leiðin upp sé ekki tæknileg þá er hún engu að síður löng og tekur á líkamlega og andlega. Ferðin er því afar krefjandi og þarfnast samvinnu leiðsögumanns og göngumanna.

Gangan hefst eldsnemma við Sandfell, um 10 mínútum frá Skaftafelli. Leiðin sjálf er um 24 km og gangan tekur að jafnaði 11-15 klst. Fyrsta verkefni dagsins er að ganga á Sandfellið. Komið er að jöklinum í um 1.100 metrum yfir sjávarmáli og þá förum við í öryggislínu. Vanalega eru 2-6 manns í línu. Eftir það tekur við löng brekka. Hún er ekki tæknileg, en tekur á andlega og líkamlega.

Gestir þurfa að vera viðbúnir því að klofa jökulsprungur, en leiðsögumaðurinn þinn og sérhæfður jöklabúnaður mun tryggja öryggi þitt í ferðinni. Á toppnum hömpum við sigri og njótum útsýnisins yfir stærsta jökul Evrópu utan heimskautasvæðana. Við örkum sömu leið niður og endum við reynitréð í Sandfelli.

be prepared for your adventure

Nauðsynlegt er að gista í Öræfum nóttina áður, þar sem gangan hefst eldsnemma morguns og lýkur ekki fyrr en seinni hluta dags.

  • Við mælum með að vera kominn um eftirmiðdag til þess að ná góðri hvíld fyrir langan og erfiðan dag.
  • Algengt er að fara af stað á milli 4 og 5 um nóttina, eftir aðstæðum.
  • Við erum með kynningarfund klukkan 17 daginn áður, ef þið komist ekki þá getið þið fengið upplýsingar í gegnum síma og tölvupóst.

 

Við erum í 340km fjarlægð frá Reykjavík. Við munum senda þér upplýsingar um nákvæman stað og stund fyrir ferðina. 

Erfiðleikastig: 4+ af 5 mögulegum

Lengd ferðar: 24 km, 11-15 klst

Hæð: 2.110 metrar

Hækkun: um 2.000 metrar

Tímabil í boði: Apríl – Júlí

Upphafssstaður: Sandfell í Öræfum

Verð: 39.900 ISK á mann, lágmark 2 manns, einnig er í boði einkaferðir, línan með hámark 6 manns kostar 200.000 isk Við bjóðum stærri hópum uppá sérverð. Hafið samband við info@localguide.is eða s. 8941317 til að fá tilboð

Hvað er innifalið: Leiðsögn, tilheyrandi jöklabúnaður ef þáttakendur vantar (sigbelti, broddar, karabína & ísexi)

Hvað er ekki innifalið: Útivistarfatnaður, bakpoki, nesti og drykkur

Hvað þarf að taka með: Nákvæmur búnaðarlisti verður sendur til þátttakenda

Flokkar: Jöklaleiðangur, tindaleiðangur

Tungumál leiðsögumanns: Íslenska og enska.

Afbókunarskilmálar okkar.

BOOK NOW

FAQ

Ef einn úr hópnum örmagnast þá þarf það línuteymi að snúa við.

Samkvæmt okkar stöðlum þá eru það 6 + leiðsögumaður.

Veðrið uppi á hájökli á íslandi getur verið óútreiknanlegt, ávallt er sá dagur valin sem lítur best út samkvæmt spá en það getur breyst hratt, ef veðrið er of vont uppá jökli þá tökum við enga áhættu því þá getur hæglega lítið slys eins og snúinn ökkli orðið að erfiðri björgun sem getur sett marga í hættu. Leiðsögumaður er með búnað og þjálfun til að geta komið hópnum niður þó skyggnið sé slæmt.

Gengið er í línu þegar hætta er á sprungum og ef passað er uppá að hafa hæfilega strekkt á línunni þá dettur fólk sjaldan niður nema kannski uppað hné eða mitti.

Oftast er stoppað á um 1 klst fresti til að næra sig og hvíla þá er venjulega ekkert mál að gera þarfir sínar afsíðis.

Nei, toppurinn er 2110 metrum. Almennt finnur fólk ekki fyrir hæðarveiki fyrr en í 2500 metrum.

Hrútsfjallstindar peak to reach this summer!
Hrútsfjallstindar peaks at 1,875 meters and is in the top four peaks of Iceland. Read more about this special tour we could organise for you in Öræfajökull area.
SEE MORE
Two peaks in one trip?
An exciting expedition where the mission is ambitious... The goal is to reach two magnificent mountain giants in one trip! Hnappur and Sveinstindur!
SEE MORE
Meet our team!
Local Guide is a family business with a small team of dedicated and diverse guides. Learn more about how our guides make our company so unique.
SEE MORE

INTERESTED IN PRIVATE TOUR?

send us a request

SINGLES OFFER!
Celebrate Singles Week with 10% off your next adventure! Use a promo code SINGLES10 at the checkout of our ice cave tours and glacier hikes.

HALLOWEEN SALE!
Celebrate the spooky season with a 10% discount on all glacier tours this winter. Use code: SPOOKYGLACIER10 at the checkout. The promo code will expire on November 4th and it is valid for all the public tours until March 31st 2025.
BLACK FRIDAY SALE
Enjoy your 15% discount for all of our glacier tours until the end of 2026 when booking between 17.11-30.11. Use promo code BLACKFRIDAY25 at the checkout!