Hrútsfjallstindar
Hrútsfjallstindar standa hæst í 1.875 metrum og eru þeir fjórir toppar. Þeir eru
stórglæsilegir alpatindar í Öræfajökli vestan við Hvannadalshnúk og gefa
Svínafellsjökli tígulega ásýnd. Ferðin er undurfalleg fjallganga sem er einnig
krefjandi áskorun. Í leiðangrinum njótum við fallegs útsýnis á leiðinni sem og á
toppnum.
Fyrir hvern? Ferðin er á færi þeirra sem eru í mjög góðu gönguformi og vanir löngum og krefjandi göngum í snjó. Þrátt fyrir að uppgangan sé ekki tæknileg þá er hún engu að síður löng og tekur á líkamlega og andlega. Ferðin er því afar krefjandi og þarfnast samvinnu leiðsögumanns og göngumanna.
Gangan hefst við rætur Hafrafells. Leiðin sjálf er um 26 km, hækkunin um 1.800
metrar og tekur að jafnaði 14-16 klst. Við vinnum okkur upp hlíðar Hafrafells,
meðfram Skaftafellsjökli, þar til við komum að jökulbreiðunni sem umkringir tindana. Þar förum við í öryggislínu.
Þegar við nálgumst tindana sjálfa, þá veljum við okkur tind eftir aðstæðum og löngun. Allir eru þeir glæsilegir og umhverfið stórkostlegt. Á toppnum, ef veður lofar, sjáum við jökulbreiðuna endalausu, beittu skriðjöklana og hvassa tinda. Útsýnið er í senn ævintýralegt og ógleymanlegt.
be prepared for your adventure
Mikilvægar upplýsingar:
- Nauðsynlegt er að gista í Öræfum nóttina áður, þar sem gangan hefst
eldsnemma morguns og lýkur ekki fyrr en seinni hluta dags. - Við mælum með að vera kominn um eftirmiðdag til þess að ná góðri hvíld fyrirlangan og erfiðan dag.
- Algengt er að fara af stað á milli 4 og 5 um nóttina, eftir aðstæðum.
Við erum með kynningarfund klukkan 17 daginn áður, ef þið komist ekki þá getið þið fengið upplýsingar í gegnum síma og tölvupóst.
Erfiðleikastig: 5 af 5 mögulegum
Lengd ferðar: 26 km, 14-16 klst
Hæð: 1.875 metrar
Hækkun: ~1750 metrar
Tímabil í boði: Apríl – Ágúst
Upphafssstaður: Söluskálinn í Freysnesi
Verð: 41.600 ISK á mann í opna brottför eða 200.000 ISK einkalínan, max 6 manns
á leiðsögumann.
Hvað er innifalið: Leiðsögn, jeppaskutl og tilheyrandi jöklabúnaður ef göngufólki
vantar (sigbelti & karabína, broddar og ísexi)
Hvað er ekki innifalið: Útivistarfatnaður, bakpoki, nesti og drykkur
Hvað þarf að taka með: Nákvæmur búnaðarlisti verður sendur til þátttakenda
Flokkar: Jöklaleiðangur, tindaleiðangur
Tungumál leiðsögumanns: Íslenska og enska
FAQ
Ef einhverjar spurning eða áhyggjur vakna þá endilega skoðið algengar spurningar (FAQ) á tindaferðasíðuni okkar sem er helguð Hvannadalshnjúk. Ef það eru einhverjar fleiri spurningar þá ekki hika við að senda á okkur tölvupóst.
INTERESTED IN PRIVATE TOUR?
send us a request
send us a request












